Belle De Jour er klárlega einhver allrabesta mynd sem ég hef séð í þónokkurn tíma. Myndin er stúdía á undirmeðvitund, draumum og kynhvöt þar sem skilin á milli raunveruleika og fantasíu aðalpersónunnar eru ekki alltaf skýr. Myndin segir frá Sevérin, leikin af gullfallegri Catherine Deneuve, sem gengur í gegnum einhvers konar tilvistarkreppu þar sem hún kemst að því að hún þurfi á útrás að halda fyrir bældri undirmeðvitund sinni.
Sagan er sögð á þrjá vegu; í fyrsta lagi í gegnum raunverulega atburði, öðru laga dagdrauma og í þriðja lagi flassbakkatriði úr æsku og á köflum er eins og öllum elementunum sé raðað saman í sömu senuna sem skapar áhorfandanum erfiðleika við að greina hvort um raunverulega atburði sé að ræða.
Ég treysti mér í raun ekki til að segja of mikið um myndina eftir fyrsta áhorf, enda þarfnast hún frekari greiningar svo eitthvað gáfulegt sé hægt að segja um hana. Hún var amk ótrúlega áhugaverð og flott; útpæld og framsetningin ákaflega lúmsk og glæsileg.
http://www.imdb.com/title/tt0061395/
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment