Truflandi gerviheimildarmynd (mockumentary) um kvikmyndagerðarmenn sem fylgja eftir raðmorðingja sem ræðir um heimspeki- og þjóðfélagsmál, hangir með fjölskyldunni sinni, drekkur bjór og reykir sígarettur á milli þess sem hann drepur póstmenn, gamlar konur, litla krakka og í raun hvað sem er.
Myndin er mjög low-budget-indí-dæmi og tekst að líta ótrúlega vel út miðað við það. Hún er óþægileg að horfa á, virkilega brútal; lítill krakki kæfður til dauða með kodda og feitri konu nauðgað áður en hún er hálfpartinn skorin upp.
Myndin reynir að vera fyndin á eins svarta vegu og til er (American Psycho virðist nánast disneyleg í samanburði) og það lítur út fyrir að henni hafi almennt hafa tekist það þótt ég hafi ekki sjálfur hlegið mikið. Uppruannlega pæling höfunda á að hafa verið sú að láta áhorfandann velta fyrir sér siðferðislega hvort hvort hann ætti rétt að hlæja af myndefninu. Hvað þá pælingu varðar missti hún svolítið marks hjá mér amk - kannski ég sé einfaldlega of mikil píka til að hlæja yfir jafnmiklum viðbjóði...
Engu að síður virkilega áhugaverð og vel þess virði að tékka á. Raðmorðinginn sjálfur er ótrúlega sterk persóna í myndinni og nær að halda athygli manns með almennri geðveiki og vitleysu.
http://www.imdb.com/title/tt0103905/
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment