Költmynd sem er nokkurs konar háðsádeila á allan þann fjanda sem hægt er að gera grín að á sjöunda áratugnum í Bandaríkjunum. Fylgst er með aðalpersónunni, Candy, sem fer í gegnum einhverja furðulegustu og súrrealískustu sögulína sem nokkurn tíma hefur sést í kvikmynd. Candy er falleg, góð en svolítið heimsk stelpa sem er áreitt kynferðislega af svo gott sem öllum karlpersónunum í myndinni. Sagan er sögð á nokkurs konar sketsahátt, myndin skiptist í marga parta og eru allir partarnir leiddir af furðulega stórum nöfnum, Ringo Starr, Marlond Brando, James Coburn, Richard Burton, John Huston, Walter Matthau, Sugar Ray Robinson og svo framvegis.
Myndin er fagmannlega unnin en virðist viljandi vera ömurlega leikin - Richard Burton var t.a.m. fullur allan tímann við upptökur ótrúlega fyndins hluta hans þar sem hann leikur tilgerðarlegt hippaljóðskáld sem er alltaf með vind í hárinu - sama hvort hann sé inni eða úti. James Coburn leikur celebrity-uppskurðarlækni í heimi þar sem læknar eru stærri stjörnur en leikarar og skurðaðgerðum varpað beint í sjónvarpi og með fullt af áhorfendum á sal. Erfitt er að átta sig á öllum ádeilutengingum myndarinnar þótt sumar séu augljósar.
Einhver súrasta mynd sem ég hef séð og ætti að hafa hlotið meiri athygli. Myndin er ótrúlega gáfuleg og heimskuleg á sama tíma sem skapar henni skemmtilegt jafnvægi.
Og já - myndina er að finna í klámmyndarekka Laugarásvideo.
No comments:
Post a Comment