Apr 14, 2009

Black Cat, White Cat - Emir Kustarca - 1998 - Frakkland/Grikkland o.fl

Svartur Köttur, Hvítur Köttur er mynd sem mig hafði langað að sjá í óralangan tíma - bæði vegna endalausra meðmæla víðs vegar af internetinu og bókum ásamt því að hafa heyrt góða hluti frá kunningjum. Ég varð fyrir svolitlum vonbrigðum.

Myndin er vissulega ótrúlega vel unnin og ég hef sjaldan séð mynd sem er jafnyfirfull af hreyfingu og lífi; í Kustarca er greinilega sköpunargleði sem nær í sjaldséðar hæðir. Og myndin er líka mjög falleg, myndum skotið upp af konu sem finnur ástina bókstaflega á flótta úr eigin brúðkaupi, sjarmerandi strippsena tveggja aðila á hlaupum hlæjandi í hamingjuvímu um risavaxinn sólblómavöll og svo mætti lengi telja. Sígaunasamfélagið sem sagan gerist í nýtur sín einnig ótrúlega vel, furðulegar andstæður í samfélaginu eru fyndnar og hver einasti karakter sker sig úr á einhvern hátt.

Það vantaði þó eitthvað til að heilla mig upp úr skónum, og tekst mér hálfilla eða leggja fingur á hvaða element það var. Hugsanlega var þetta alltsaman örlítið of yfirdrifið fyrir mig eða kannski þarf ég bara annað áhorf. Stefni á að kíkja á Underground eftir sama leikstjóra sem allrafyrst.

No comments:

Post a Comment